FRÉTT VERÐLAG 27. JÚLÍ 2012

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2012 er 397,2 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,72% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 376,9 stig og lækkaði um 1,0% frá júní.

Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,8% (vísitöluáhrif -0,54%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 15% (-0,29%) og verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,2% (-0,12%).

Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 1,3% (0,19%) og vó þar þyngst 5,2% hækkun á verði mjólkurafurða og eggja (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,6% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,3% sem jafngildir 1% verðhjöðnun á ári (1,9% verðhjöðnun á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2012, sem er 397,2 stig, gildir til verðtryggingar í september 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.843 stig fyrir september 2012.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2012
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júní Júlí %
Vísitala neysluverðs 224,2 222,5 4,6 4,6
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 200,0 203,2 7,1 0,9
Búvörur og grænmeti 184,7 191,3 9,3 0,6
Innlendar vörur án búvöru 212,0 211,6 5,3 0,4
Innfluttar vörur alls 200,3 196,1 2,8 1,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  193,2 188,8 2,6 0,9
Dagvara 200,4 202,3 6,4 1,1

Breytingar vísitölu neysluverðs 2011–2012
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2011
Júlí 379,9 0,1 1,3 6,3 9,3 5,0
Ágúst 380,9 0,3 3,2 3,5 7,3 5,0
September 383,3 0,6 7,8 4,1 6,6 5,7
Október 384,6 0,3 4,1 5,0 5,7 5,3
Nóvember 384,6 0,0 0,0 3,9 3,7 5,2
Desember 386,0 0,4 4,5 2,8 3,5 5,3
2012
Janúar 387,1 0,3 3,5 2,6 3,8 6,5
Febrúar 391,0 1,0 12,8 6,8 5,4 6,3
Mars 395,1 1,0 13,3 9,8 6,3 6,4
Apríl 398,2 0,8 9,8 12,0 7,2 6,4
Maí 398,1 0,0 -0,3 7,5 7,1 5,4
Júní 400,1 0,5 6,2 5,2 7,4 5,4
Júlí 397,2 -0,7 -8,4 -1,0 5,3 4,6

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.