FRÉTT VERÐLAG 26. NÓVEMBER 2014

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2014 er 421,0 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 393,4 stig og lækkaði um 0,61% frá október.

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 17,3% (áhrif á vísitöluna -0,25%) og verð á bensíni og olíum lækkaði um 2,6% (-0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% og vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 0,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,5% sem jafngildir 2,0% verðhjöðnun á ári (4,0% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2014, sem er 421,0 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2015. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.313 stig fyrir janúar 2015.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2014
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Október Nóvember %
Vísitala neysluverðs 237,1 235,9 1,0 1,0
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 211,7 211,1 -0,7 -0,1
Búvörur og grænmeti 197,7 195,9 -2,2 -0,1
Innlendar vörur án búvöru 222,3 223,0 0,8 0,1
Innfluttar vörur alls 199,2 198,1 -2,3 -0,8
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  190,1 188,9 -2,8 -0,9
Dagvara 208,6 207,9 -1,1 -0,2

 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2013–2014

Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2013
Nóvember 416,7 0,4 4,4 2,8 2,6 3,7
Desember 418,9 0,5 6,5 3,6 2,6 4,2
2014
Janúar 415,9 -0,7 -8,3 0,7 1,7 3,1
Febrúar 418,7 0,7 8,4 1,9 2,4 2,1
Mars 419,7 0,2 2,9 0,8 2,2 2,2
Apríl 421,0 0,3 3,8 5,0 2,8 2,3
Maí 421,3 0,1 0,9 2,5 2,2 2,4
Júní 422,8 0,4 4,4 3,0 1,9 2,2
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8
Október 423,2 0,1 1,7 1,0 1,0 1,9
Nóvember 421,0 -0,5 -6,1 -2,0 -0,1 1,0

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.