FRÉTT VERÐLAG 25. SEPTEMBER 2014

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2014 er 422,6 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,12% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 395,7 stig og lækkaði um 0,43% frá ágúst.

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 28,9% (áhrif á vísitöluna -0,52%) en kostnaður vegna eigin húsnæðis (reiknuð leiga) hækkaði um 1,4% (0,19%). Sumarútsölum er nú nánast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 3,3% (áhrif á vísitöluna 0,15%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,05% sem jafngildir 0,2% verðhjöðnun á ári (1,9% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Frá og með október 2014 verður nýtt líkan fyrir verðmælingu á síma og internetþjónustu tekið í notkun í vísitölu neysluverðs. Nýja líkanið mælir raunkostnað neytenda í stað þess að mæla eingöngu breytingar á gjaldskrám símafyrirtækja.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2014, sem er 422,6 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2014. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.344 stig fyrir nóvember 2014.


Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2014
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Ágúst September %
Vísitala neysluverðs 237,1 236,8 1,8 1,8
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 212,1 212,1 0,5 0,1
Búvörur og grænmeti 199,1 198,9 0,4 0,0
Innlendar vörur án búvöru 221,5 221,8 0,7 0,0
Innfluttar vörur alls 199,4 199,9 -1,8 -0,6
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  190,3 190,9 -2,2 -0,7
Dagvara 208,9 208,8 -0,3 -0,1

Breytingar vísitölu neysluverðs 2013–2014
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2013
September 415,2 0,3 4,1 1,7 2,2 3,9
Október 415,2 0,0 0,0 2,7 1,8 3,6
Nóvember 416,7 0,4 4,4 2,8 2,6 3,7
Desember 418,9 0,5 6,5 3,6 2,6 4,2
2014
Janúar 415,9 -0,7 -8,3 0,7 1,7 3,1
Febrúar 418,7 0,7 8,4 1,9 2,4 2,1
Mars 419,7 0,2 2,9 0,8 2,2 2,2
Apríl 421,0 0,3 3,8 5,0 2,8 2,3
Maí 421,3 0,1 0,9 2,5 2,2 2,4
Júní 422,8 0,4 4,4 3,0 1,9 2,2
Júlí 422,1 -0,2 -2,0 1,0 3,0 2,4
Ágúst 423,1 0,2 2,9 1,7 2,1 2,2
September 422,6 -0,1 -1,4 -0,2 1,4 1,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.