FRÉTT VERÐLAG 28. SEPTEMBER 2023

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í september 2023, er 599,9 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,35% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 495,4 stig og hækkar um 0,18% frá ágúst 2023.

Verð á fötum og skóm hækkaði um 3,7% (áhrif á vísitöluna 0,14%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,9% (0,16%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 10,6% (-0,22%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,0% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2023, sem er 599,9 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2023.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.