Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í september 2019, er 470,5 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,09% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 402,0 stig og hækkar um 0,10% frá ágúst 2019.

Verð á fatnaði og skóm hækkaði um 4,2% (áhrif á vísitöluna 0,18%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 8,6% (-0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,0% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,9%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2019, sem er 470,5 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.290 stig fyrir nóvember 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2018-2019
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2018
September456,80,22,91,92,12,7
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3
Desember463,90,79,26,44,13,7
2019
Janúar462,0-0,4-4,82,33,23,4
Febrúar462,90,22,42,13,23,0
Mars465,30,56,41,23,82,9
Apríl467,00,44,54,43,33,3
Maí468,00,22,64,53,33,6
Júní469,80,44,73,92,63,3
Júlí468,8-0,2-2,51,63,03,1
Ágúst470,10,33,41,83,13,2
September470,50,11,00,62,23,0

Vegna breytinga sem hafa orðið á lánakostum við kaup á húsnæði undirbýr Hagstofa Íslands nú endurskoðun á vogum sem notaðar eru við útreikning á reiknaðri leigu fyrir búsetu í eigin húsnæði. Nýja samsetningin verður notuð við næsta útreikning á vísitölu neysluverðs sem verður birt 28. október 2019.

Innleiðingin felur í sér að vogir fyrir vaxtaflokka lánastofnana og eigin fjárframlag verða uppfærðar. Endurskoðun voga fyrir vaxtaflokka hefur sem slík ekki áhrif til verðbreytingar á vísitölu neysluverðs, heldur er notaður sami grunnur í verðsamanburði milli mánaða. Vogir eru endurskoðaðar til að endurspegla betur raunverulega samsetningu.

Talnaefni