FRÉTT VERÐLAG 27. SEPTEMBER 2018

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2018 er 456,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,24% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 390,5 stig og hækkar um 0,26% frá ágúst 2018.

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 25,3% (áhrif á vísitöluna -0,39%). Sumarútsölur eru að mestu gengnar til baka en verð á fötum og skóm hækkaði um 8,7% (0,29%). Verð á mat hækkaði um 1,3% (0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,7% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,8%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2018, sem er 456,8 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.020 stig fyrir nóvember 2018.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2017            
September 444,6 0,1 1,6 1,5 2,1 1,4
Október 446,7 0,5 5,8 3,5 2,1 1,9
Nóvember 446,0 -0,2 -1,9 1,8 1,4 1,7
Desember 447,2 0,3 3,3 2,4 1,9 1,9
2018            
Janúar 446,8 -0,1 -1,1 0,1 1,8 2,4
Febrúar 449,5 0,6 7,5 3,2 2,5 2,3
Mars 452,0 0,6 6,9 4,4 3,4 2,8
Apríl 452,2 0,0 0,5 4,9 2,5 2,3
Maí 451,8 -0,1 -1,1 2,1 2,6 2,0
Júní 454,6 0,6 7,7 2,3 3,3 2,6
Júlí 454,8 0,0 0,5 2,3 3,6 2,7
Ágúst 455,7 0,2 2,4 3,5 2,8 2,6
September 456,8 0,2 2,9 1,9 2,1 2,7

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.