FRÉTT VERÐLAG 24. SEPTEMBER 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2008 er 315,5 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,86% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 284,3 stig og hækkaði hún um 1,25% frá ágúst.

Verð á fötum og skóm hækkaði um 11,2% (vísitöluáhrif 0,47%), aðallega vegna sumarútsöluloka. Verð á þjónustu hækkaði um 1,1% (0,30%). Þar af voru vísitöluáhrif af verðhækkun á opinberri þjónustu 0,08% og af verðhækkun annarrar þjónustu 0,22%.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,7% (-0,11%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,14% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,03%. Verð á nýjum bílum lækkaði um 1,8% (-0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði  hefur vísitala neysluverðs hækkað um 14,0% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 14,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,7% sem jafngildir 11,4% verðbólgu á ári (12,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í september 2008, sem er 315,5 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.230 stig fyrir nóvember 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Ágúst September %
Vísitala neysluverðs 175,2 176,8 14,0 14,0
Þar af:    
Innlendar vörur 151,9 152,3 15,4 2,0
Búvörur og grænmeti 149,5 148,5 15,3 0,8
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 153,1 154,5 15,4 1,1
Innfluttar vörur alls 142,1 144,5 19,1 6,5
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  138,4 140,9 20,3 6,3
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 175,1 177,0 12,7 11,4
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 177,1 179,0 13,3 11,0
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 174,6 176,4 11,7 9,7
Dagvara 150,4 151,6 20,7 3,0

Talnaefni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.