FRÉTT VERÐLAG 12. SEPTEMBER 2006

Vísitala neysluverðs í september 2006 er 265,6 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,61% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 245,2 stig, hækkaði um 0,62% frá því í ágúst.

Sumarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 11,7% (vísitöluáhrif 0,49%). Verð á dagvörum hækkaði um 1,6% (0,25%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,5% (0,09%), þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,01% og af hækkun vaxta 0,08%.

Verð á bensíni og olíu lækkaði um 3,3% (-0,23%) og flugfargjöld lækkuðu um 10,8% (-0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% sem jafngildir 5,8% verðbólgu á ári (5,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í september 2006, sem er 265,6 stig, gildir til verðtryggingar í október 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.244 stig fyrir október 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Ágúst 2006 September 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 147,9 148,8 7,6% 7,6%
Þar af:    
Innlendar vörur 135,7 137,6 10,5% 1,5%
Búvörur og grænmeti 131,8 134,3 11,7% 0,7%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 138,0 139,6 9,5% 0,8%
Innfluttar vörur alls 119,7 120,9 5,6% 2,0%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  115,9 117,1 5,8% 1,8%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 148,1 149,3 7,2% 6,2%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 148,7 150,1 7,8% 6,2%
Dagvara 129,9 132 12,1% 1,8%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.