FRÉTT VERÐLAG 27. OKTÓBER 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í október 2008 er 322,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 2,16% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 292,9 stig og hækkaði hún um 3,02% frá september.

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 4,3% (vísitöluáhrif 0,55%) og verð á fötum og skóm um 4,9% (0,22%). Verð á húsgögnum, heimilistækjum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 7,1% (0,46%), á varahlutum og hjólbörðum um 19,6% (0,20%), á flugfargjöldum til útlanda um 18,7% (0,20%) og verð á sjónvörpum, dvd-spilurum, tölvum o.fl. hækkaði um 10,6% (0,15%).

Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 3,4% (-0,17%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 1,3% (-0,21%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,24% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,03%.

Hlutur húsnæðisviðskipta þar sem fasteignir og lausafé eru notuð sem greiðsla hefur vaxið verulega frá maí á þessu ári. Við núvirðingu kaupsamninga í viðskiptum af þessu tagi hefur verið ákveðið að hækka ávöxtunarkröfuna sem notuð er við útreikning á staðgreiðsluverðmæti fasteigna. Áhrifin af þessari leiðréttingu eru 0,22% til lækkunar á vísitölu neysluverðs.

Nýskráningar bifreiða hafa nánast stöðvast af efnahagsástæðum. Í ljósi þessa er ekki tekið tillit til breytinga á listaverði bíla frá september, en það hefði hækkað bifreiðalið vísitölunnar um 4,1% (áhrif 0,30%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 15,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 17,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,0% sem jafngildir 16,8% verðbólgu á ári (22,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2008, sem er 322,3stig, gildir til verðtryggingar í desember 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.364 stig fyrir desember 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0
Október 322,3 2,2 29,2 16,8 15,2 15,9

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  September Október %
Vísitala neysluverðs 176,8 180,6 15,9 15,9
Þar af:    
Innlendar vörur 152,3 157,6 18,5 2,4
Búvörur og grænmeti 148,5 152,5 17,4 1,0
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 154,5 160,7 19,2 1,4
Innfluttar vörur alls 144,5 150,0 23,2 7,9
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  140,9 146,5 24,6 7,6
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm.,     
ávaxta og bensíns) 177,0 181,2 14,9 13,3
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 179,0 183,4 15,6 12,9
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 176,4 180,8 14,1 11,6
Dagvara 151,6 158,7 25,2 3,6

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.