FRÉTT VERÐLAG 12. OKTÓBER 2005

Vísitala neysluverðs í október 2005 er 248,4 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,61% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 232,5 stig, hækkaði um 0,48% frá því í september.
Verð á dagvörum hækkaði um 1,6% (vísitöluáhrif  0,25%) og verð á fötum og skóm hækkaði um 4,0% (0,20%). Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,4% (0,23%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,25% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,02%.

Verð á bensíni og gasolíu lækkaði um 2,4% (-0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,2%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,3% sem jafngildir 9,7% verðbólgu á ári (8,3% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis). 
  
Vísitala neysluverðs í október 2005, sem er 248,4 stig, gildir til verðtryggingar í nóvember 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.905 stig fyrir nóvember 2005. 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2004–2005
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2004
Október 237,4 0,8 9,6 4,9 4,7 3,7
Nóvember 237,9 0,2 2,6 5,7 3,4 3,8
Desember 239,0 0,5 5,7 5,9 2,8 3,9
2005
Janúar 239,2 0,1 1,0 3,1 4,0 4,0
Febrúar 239,7 0,2 2,5 3,1 4,4 4,5
Mars 241,5 0,8 9,4 4,3 5,1 4,7
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6


Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2005
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Sept. 2005 Okt. 2005 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 138,3 139,2 4,6% 4,6%
Þar af:    
Innlendar vörur 124,6 126,3 -0,4% -0,1%
Búvörur og grænmeti 120,2 121,8 0,1% 0,0%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 127,4 129,2 -0,8% -0,1%
Innfluttar vörur alls 114,4 114,8 -0,9% -0,3%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  110,7 111,2 -1,4% -0,4%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 139,2 140,3 4,8% 4,3%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 139,2 140,3 4,7% 3,7%
Dagvara 117,7 119,6 -2,3% -0,4%

Talnaefni
 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.