FRÉTT VERÐLAG 29. NÓVEMBER 2022

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í nóvember 2022, er 560,9 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,29% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 463,3 stig og hækkar um 0,06% frá október 2022.

Verð á matvörum hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitöluna 0,11%) og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,0% (0,20%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 8,9% (-0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2022, sem er 560,9 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2023. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.075 stig fyrir janúar 2023.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.