FRÉTT VERÐLAG 29. NÓVEMBER 2018

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2018 er 460,5 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,24% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 393,5 stig og hækkar um 0,18% frá október 2018.

Verð á nýjum bílum hækkaði um 1,6% (áhrif á vísitöluna 0,14%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 13,2% (-0,16%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,3% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,4%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2018, sem er 460,5 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.093 stig fyrir janúar 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
Vísitala
2017
Nóvember446,0-0,2-1,91,81,41,7
Desember447,20,33,32,41,91,9
2018
Janúar446,8-0,1-1,10,11,82,4
Febrúar449,50,67,53,22,52,3
Mars452,00,66,94,43,42,8
Apríl452,20,00,54,92,52,3
Maí451,8-0,1-1,12,12,62,0
Júní454,60,67,72,33,32,6
Júlí454,80,00,52,33,62,7
Ágúst455,70,22,43,52,82,6
September456,80,22,91,92,12,7
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.