FRÉTT VERÐLAG 12. NÓVEMBER 2007

Vísitala neysluverðs í nóvember 2007 er 279,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,65% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 249,7 stig, hækkaði um 0,40% frá október.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,9%, vísitöluáhrif 0,36%, en þar af voru 0,29% áhrif vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis og 0,07% vegna hækkunar vaxta.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 2,1% (0,1%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,9%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,0% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,5% sem jafngildir 10,3% verðbólgu á ári (7,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í nóvember 2007, sem er 279,9 stig, gildir til verð¬tryggingar í desember 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.527 stig fyrir desember 2007.

Í janúar breytist vísitala neysluverðs þannig að söfnun verðupplýsinga fyrir vísitöluna færist frá tveimur dögum í upphafi mánaðar til a.m.k vikutíma um miðjan mánuð. Samtímis breytist viðmiðunartími vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Minnisblað um þessar breytingar fylgja hér.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
Nóvember 266,1 0,0 -0,4 3,2 5,6 7,3
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Október Nóvember %
Vísitala neysluverðs 155,8 156,8 5,2% 5,2%
Þar af:    
Innlendar vörur 133,0 133,0 -2,7% -0,4%
Búvörur og grænmeti 130,0 129,1 -2,2% -0,1%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 134,8 135,3 -3,1% -0,3%
Innfluttar vörur alls 121,7 122,3 1,7% 0,6%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  117,6 118,3 1,8% 0,5%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 157,7 158,8 5,4% 4,8%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 158,7 159,9 5,6% 4,6%
Dagvara 126,7 126,2 -3,5% -0,6%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.