FRÉTT VERÐLAG 10. NÓVEMBER 2004

Vísitala neysluverðs í nóvember 2004 er 237,9 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,21% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 229,8 stig, óbreytt frá því í október.
     Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 1,2% (vísitöluáhrif 0,15%) en verð á bensíni og olíu lækkaði um 2,2% (-0,10%).
     Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% sem jafngildir 5,7% verðbólgu á ári (4,5% án húsnæðis). 
     Vísitala neysluverðs í nóvember 2004, sem er 237,9 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2004. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.697 stig fyrir desember 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.