Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2026, er 678,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,55% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 542,4 stig og hækkar um 0,67% frá febrúar 2026.
Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,7% (áhrif á vísitöluna 0,11%), verð á bensíni hækkaði um 5,8% (0,10%) og verð á dísel hækkaði um 6,9% (0,05%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,4% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,9%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2026, sem er 678,3 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2026.