FRÉTT VERÐLAG 28. MARS 2017

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2017 er 439,9 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,07% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 389,2 stig og lækkaði hún um 0,28% frá febrúar 2017.

Verð á fötum og skóm hækkaði um 7,9% (áhrif á vísitölu 0,30%) og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,7% (0,28%). Ferðir og flutningar lækkuðu um 1,7% (-0,25%), verð á mat og drykkjarvörum lækkaði um 0,9% (-0,13%) og húsgögn og heimilisbúnaður lækkuðu um 2,7% (-0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 1,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2017, sem er 439,9 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2017. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.686 stig fyrir maí 2017.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2016-2017
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2016            
Mars 432,8 0,4 4,5 1,9 1,0 1,5
Apríl 433,7 0,2 2,5 5,1 1,3 1,6
Maí 435,5 0,4 5,1 4,0 2,9 1,7
Júní 436,3 0,2 2,2 3,3 2,6 1,6
Júlí 434,9 -0,3 -3,8 1,1 3,1 1,1
Ágúst 436,4 0,3 4,2 0,8 2,4 0,9
September 438,5 0,5 5,9 2,0 2,7 1,8
Október 438,5 0,0 0,0 3,4 2,2 1,8
Nóvember 438,4 0,0 -0,3 1,8 1,3 2,1
Desember 439,0 0,1 1,7 0,5 1,2 1,9
2017            
Janúar 436,5 -0,6 -6,6 -1,8 0,7 1,9
Febrúar 439,6 0,7 8,9 1,1 1,5 1,9
Mars 439,9 0,1 0,8 0,8 0,6 1,6

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.