FRÉTT VERÐLAG 29. MARS 2011

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars er 371,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,95% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 353,9 stig og hækkaði um 1,09% frá febrúar.

Verð á bensíni og olíum hækkaði um 6,9% (vísitöluáhrif 0,41%) og verð á fötum og skóm um 3,7% (0,23%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 0,8% (0,10%), aðallega vegna hærra markaðsverðs.

Síðastliðna tólf mánuði hafa vísitala neysluverðs og vísitalan án húsnæðis hækkað jafnmikið eða um 2,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,2% sem jafngildir 5,0% verðbólgu á ári (5,1% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2011, sem er 371,2 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.329 stig fyrir maí 2011.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010-2011
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Febrúar Mars %
Vísitala neysluverðs 206,0 208,0 2,3 2,3
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 184,2 183,9 2,4 0,3
Búvörur og grænmeti 170,5 169,4 3,0 0,2
Innlendar vörur án búvöru 194,8 195,2 2,0 0,2
Innfluttar vörur alls 185,9 190,1 1,0 0,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  178,9 183,3 0,8 0,3
Dagvara 186,3 186,3 1,1 0,2

Breytingar vísitölu neysluverðs 2010–2011
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2010
Mars 362,9 0,6 6,9 5,7 7,8 8,5
Apríl 363,8 0,2 3,0 8,1 5,9 8,3
Maí 365,3 0,4 5,1 5,0 5,2 7,5
Júní 364,1 -0,3 -3,9 1,3 3,5 5,7
Júlí 361,7 -0,7 -7,6 -2,3 2,8 4,8
Ágúst 362,6 0,2 3,0 -2,9 0,9 4,5
September 362,6 0,0 0,0 -1,6 -0,2 3,7
Október 365,3 0,7 9,3 4,0 0,8 3,3
Nóvember 365,5 0,1 0,7 3,2 0,1 2,6
Desember 366,7 0,3 4,0 4,6 1,4 2,5
2011
Janúar 363,4 -0,9 -10,3 -2,1 0,9 1,8
Febrúar 367,7 1,2 15,2 2,4 2,8 1,9
Mars 371,2 1,0 12,0 5,0 4,8 2,3


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.