FRÉTT VERÐLAG 10. MARS 2006

Vísitala neysluverðs í mars 2006 er 252,3 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,12% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 233,6 stig, hækkaði um 1,17% frá því í febrúar.

Vetrarútsölum er nú víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 16,9% (vísitöluáhrif 0,72%).
Verð á eigin húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,1% (0,19%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% sem jafngildir 5,6% verðbólgu á ári (2,8% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í mars 2006, sem er 252,3 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.982 stig fyrir apríl 2006. 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
Mars 241,5 0,8 9,4 4,3 5,1 4,7
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Feb. 2006 Mars 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 139,8 141,3 4,5% 4,5%
Þar af:    
Innlendar vörur 129,4 129,8 3,3% 0,5%
Búvörur og grænmeti 126,1 125,3 4,1% 0,3%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 131,4 132,8 2,8% 0,3%
Innfluttar vörur alls 110,6 113,3 0,2% 0,1%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  106,3 109,2 0,0% 0,0%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 140,9 142,7 4,2% 3,7%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 140,9 142,9 4,4% 3,5%
Dagvara 122,6 122,8 2,5% 0,4%
     
Með þessari fréttatilkynningu fylgir stutt minnisblað um áformaðar breytingar á vísitölunni við grunnskiptin í mars en vísitala á nýjum grunni verður birt 12. apríl nk.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.