FRÉTT VERÐLAG 10. MARS 2005
Vísitala neysluverðs í mars 2005 er 241,5 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,75% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 229,4 stig, hækkaði um 0,35% frá því í febrúar.
       Vetrarútsölum er nú víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 12,2% (vísitöluáhrif 0,58%).  Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 3,3% (0,47%) en verð á bensíni og olíu hækkaði um 2,7% (0,11%).  
       Verð á dagvöru (mat, drykkjarvöru og öðru því sem kaupa má í matvöruverslunum) lækkaði um 2,7% (-0,47%) og má það að miklu leyti rekja til verðstríðs sem nú geisar á matvörumarkaði.
       Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% sem jafngildir 4,3% verðbólgu á ári (1,9% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).
       Vísitala neysluverðs í mars 2005, sem er 241,5 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.768 stig fyrir apríl 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.