Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí 2019, er 468,0 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,21% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 400,2 stig og hækkar um 0,20% frá apríl 2019.

Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 8,9% frá fyrra mánuði (áhrif á vísitölu -0,15%).

Verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,1% (0,11%) milli mánaða.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,6% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 3,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2019, sem er 468,0 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.241 stig fyrir júlí 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2018-2019
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2018
Maí451,8-0,1-1,12,12,62,0
Júní454,60,67,72,33,32,6
Júlí454,80,00,52,33,62,7
Ágúst455,70,22,43,52,82,6
September456,80,22,91,92,12,7
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3
Desember463,90,79,26,44,13,7
2019
Janúar462,0-0,4-4,82,33,23,4
Febrúar462,90,22,42,13,23,0
Mars465,30,56,41,23,82,9
Apríl467,00,44,54,43,33,3
Maí468,00,22,64,53,33,6

Talnaefni