FRÉTT VERÐLAG 26. MAÍ 2009

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí 2009 er 339,8 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,13% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 316,1 stig og hækkaði hún um 1,44% frá apríl.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 4,9% (vísitöluáhrif 0,22%) og verð á bílum um 4,9% (0,17%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,0% (0,14%). Áhrif af hækkun markaðsverðs voru 0,18% en á móti komu áhrif af lækkun raunvaxta um -0,04%. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,8% (0,11%). Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 22,6% (0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,98% sem jafngildir 4,0% verðbólgu á ári (10,2% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2009, sem er 339,8 stig gildir til verðtryggingar í júlí 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.709 stig fyrir júlí 2009.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2008–2009
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2008
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0
Október 322,3 2,2 29,2 16,8 15,2 15,9
Nóvember 327,9 1,7 23,0 20,8 16,0 17,1
Desember 332,9 1,5 19,9 24,0 17,5 18,1
2009
Janúar 334,8 0,6 7,1 16,4 16,6 18,6
Febrúar 336,5 0,5 6,3 10,9 15,7 17,6
Mars 334,5 -0,6 -6,9 1,9 12,4 15,2
Apríl 336,0 0,4 5,5 1,4 8,7 11,9
Maí 339,8 1,1 14,4 4,0 7,4 11,6

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2009
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Apríl Maí %
Vísitala neysluverðs 188,2 190,4 11,7 11,7
Þar af:
Innlendar vörur 166,1 166,3 13,3 1,7
Búvörur og grænmeti 160,6 159,4 9,8 0,6
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 169,6 171,0 16,2 1,1
Innfluttar vörur alls 163,8 167,3 20,8 7,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  158,9 162,5 20,5 6,6
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm.,  0,0 0,0
ávaxta og bensíns) 189,7 191,6 12,2 10,7
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 192,5 194,6 12,9 10,4
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 190,6 192,8 13,1 10,4
Dagvara 170,4 172,3 20,2 3,2

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.