Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júní 2025, er 656,5 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,84% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 526,8 stig og hækkar um 0,90% frá maí 2025.
Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,7% (áhrif á vísitöluna 0,13%). Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkuðu um 12,7% (0,27%) og verð á hótelum og veitingastöðum hækkaði um 2,3% (0,12%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,2%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2025, sem er 656,5 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2025.
Um gögnin
Frá því í júní 2024 hefur Hagstofan metið reiknaða húsaleigu með aðferð leiguígilda. Grunnur gagnanna eru samningar sem Hagstofan metur sem markaðsleigu íbúðarhúsnæðis í húsaleigugrunni HMS ásamt eldri upplýsingum um þinglýsta samninga.
Í júní 2025 voru notaðir um 14.500 samningar og af þeim voru u.þ.b. 45% verðtryggðir. Langflestir verðtryggðu samninganna eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og verðuppfærðir mánaðarlega. Síðastliðið ár bættust við 800 til 1.000 samningar í hverjum mánuði nema í september þegar fjöldi nýrra samninga fór yfir 1.200. Algengast er að nýir samningar séu gerðir til eins árs (yfir helmingur samninga). Aðrir samningar eru ýmist til skemmri eða lengri tíma eða ótímabundnir.