FRÉTT VERÐLAG 28. JÚNÍ 2023

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júní 2023, er 595,6 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,85% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 491,1 stig og hækkar um 0,68% frá maí 2023.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,6% (áhrif á vísitöluna 0,31%). Verð á þjónustu hótela og veitingastaða hækkaði um 2,7% (0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,9% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,9%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2023, sem er 595,6 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2023. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.760 stig fyrir ágúst 2023.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.