FRÉTT VERÐLAG 24. JÚNÍ 2009

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júní 2009 er 344,5 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,38% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 322,1 stig og hækkaði hún um 1,90% frá maí.

Fastskattavísitala neysluverðs hækkaði um 0,98% en hún reiknar verðbreytingar miðað við að sköttum og gjöldum sé haldið föstum. Áfengis- og tóbaksgjald auk gjalda á bensín og díselolíu voru hækkuð með lögum sem samþykkt voru 28. maí síðastliðinn. Þessar breytingar, að undanskilinni hækkun bensíngjalds, eru þegar komnar til framkvæmda og höfðu þær um 0,4% áhrif til hækkunar á vísitölunni nú.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 7,8% (vísitöluáhrif 0,36%) og verð á áfengi og tóbaki um 9,8% (0,32%) og er það að hluta til vegna hækkunar gjalda. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,2% (0,17%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,8% (-0,11%). Áhrif af lækkun markaðsverðs voru -0,07% en af lækkun raunvaxta -0,04%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 12,2% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 16,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,0% sem jafngildir 12,5% verðbólgu á ári (18,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Breytingar vísitölu neysluverðs 2008–2009
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2008
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0
Október 322,3 2,2 29,2 16,8 15,2 15,9
Nóvember 327,9 1,7 23,0 20,8 16,0 17,1
Desember 332,9 1,5 19,9 24,0 17,5 18,1
2009
Janúar 334,8 0,6 7,1 16,4 16,6 18,6
Febrúar 336,5 0,5 6,3 10,9 15,7 17,6
Mars 334,5 -0,6 -6,9 1,9 12,4 15,2
Apríl 336,0 0,4 5,5 1,4 8,7 11,9
Maí 339,8 1,1 14,4 4,0 7,4 11,6
Júní 344,5 1,4 17,9 12,5 7,1 12,2

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2009, sem er 344,5 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.802 stig fyrir ágúst 2009.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2009
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Maí Júní %
Vísitala neysluverðs 190,4 193,0 12,2 12,2
Þar af:
Innlendar vörur 166,3 168,4 14,4 1,9
Búvörur og grænmeti 159,4 159,8 9,8 0,6
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 171,0 174,7 18,3 1,3
Innfluttar vörur alls 167,3 171,8 22,5 8,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  162,5 165,7 21,3 6,9
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 191,6 193,7 12,8 11,2
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 194,6 196,9 13,5 10,8
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 192,8 195,2 13,9 11,0
Dagvara 172,3 174,4 20,7 3,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.