FRÉTT VERÐLAG 12. JÚNÍ 2007

Vísitala neysluverðs í júní 2007 er 272,4 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 246,2 stig, hækkaði um 0,20% frá maí.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,9% (vísitöluáhrif 0,34%), aðallega vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis og verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 3,2% (0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,0% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,7%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 5,8% síðastliðna 12 mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,0% sem jafngildir 8,2% verðbólgu á ári (5,0% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í júní 2007, sem er 272,4 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.379 stig fyrir júlí 2007.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6
Október 266,2 0,2 2,7 4,8 8,8 7,2
Nóvember 266,1 0,0 -0,4 3,2 5,6 7,3
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Maí Júní %
Vísitala neysluverðs 151,8 152,6 4,0% 4,0%
Þar af:    
Innlendar vörur 130,6 130,1 -2,4% -0,3%
Búvörur og grænmeti 126,7 126,7 -2,2% -0,1%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 133,0 132,2 -2,6% -0,2%
Innfluttar vörur alls 121,2 121,9 1,2% 0,4%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  117,1 117,8 1,0% 0,3%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 154,1 154,7 4,9% 4,4%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 154,9 155,5 5,0% 4,1%
Dagvara 124,9 124,5 -2,1% -0,3%


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.