FRÉTT VERÐLAG 12. JÚNÍ 2006

Vísitala neysluverðs í júní 2006 er 261,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,16% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 242,0 stig, hækkaði um 1,0% frá því í maí.

Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 3,7% (vísitöluáhrif 0,48%). Viðhaldsliður eigin húsnæðis í vísitölu neysluverðs hækkaði um 7,1% (0,20%), og verð á eigin húsnæði um 0,9% (0,16%) þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,10% en af hækkun vaxta 0,06%.

Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,4% (-0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,0% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,8% sem jafngildir 16,1% verðbólgu á ári (15,2% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í júní 2006, sem er 261,9 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.171 stig fyrir júlí 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Maí 2006 Júní 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 145,1 146,8 8,0% 8,0%
Þar af:    
Innlendar vörur 129,4 133,3 9,7% 1,4%
Búvörur og grænmeti 124,2 129,5 12,5% 0,7%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 132,8 135,7 7,9% 0,7%
Innfluttar vörur alls 119,5 120,4 6,5% 2,3%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  115,8 116,7 6,8% 2,2%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 145,7 147,4 7,0% 6,1%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 146,3 148,1 7,6% 6,1%
Dagvara 122,6 127,1 11,6% 1,7%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.