FRÉTT VERÐLAG 22. JÚLÍ 2022

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2022, er 553,5 stig (maí 1988=100) og hækkar um 1,17% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 459,4 stig og hækkar um 0,94% frá júní 2022.

Sumarútsölur hafa verið í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 6,8% (áhrif á vísitöluna -0,24%) og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði lækkaði um 2,6% (-0,17%).

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 2,4% (0,47%) og verð á flugfargjöldum hækkaði um 38,3% (0,72%).

Hækkun á flugfargjöldum til útlanda er tilkomin vegna verðhækkunar í júlí 19,9% (0,43%), en einnig vegna þess að flugfargjöld voru vanmetin í júní 2022 (0,29%). Hækkun flugfargjalda í júní hefði átt að vera 20,4% ef ekki hefði komið til vanmats. Leiðréttingin hefur ekki áhrif á birt gildi vísitölu neysluverðs í júní.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,9% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,5%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2022, sem er 553,5 stig, gildir til verðtryggingar í september 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.929 stig fyrir september 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.