FRÉTT VERÐLAG 23. JÚLÍ 2021

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2021, er 503,5 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,16% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 427,3 stig og lækkar um 0,05% frá júní 2021.

Sumarútsölur hafa verið í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 5,3% (áhrif á vísitöluna -0,20%). Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 11,1% (0,16%), kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,9% (0,14%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,9% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,4%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2021, sem er 503,5 stig, gildir til verðtryggingar í september 2021. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.942 stig fyrir september 2021.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2020-2021
Maí 1988 = 100 Vísitala Mánaðarbreyting, % Ársbreyting, %
2020
Júlí 482,9 0,15 3,0
Ágúst 485,1 0,46 3,2
September 487,0 0,39 3,5
Október 489,1 0,43 3,6
Nóvember 489,3 0,04 3,5
Desember 490,3 0,20 3,6
2021
Janúar 490,0 -0,06 4,3
Febrúar 493,4 0,69 4,1
Mars 495,8 0,49 4,3
Apríl 499,3 0,71 4,6
Maí 501,4 0,42 4,4
Júní 502,7 0,26 4,3
Júlí 503,5 0,16 4,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.