FRÉTT VERÐLAG 24. JÚLÍ 2020

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2020, er 482,9 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,15% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 413,4 stig og hækkar um 0,17% frá júní 2020.

Sumarútsölur hafa verið í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 3,6% (áhrif á vísitöluna -0,13%). Síðustu ár hefur lækkun vegna áhrifa af útsölum verið talsvert meiri en er nú.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,0% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,3%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2020, sem er 482,9 stig, gildir til verðtryggingar í september 2020. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.535 stig fyrir september 2020.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2019-2020
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2019
Júlí468,8-0,2-2,51,63,03,1
Ágúst470,10,33,41,83,13,2
September470,50,11,00,62,23,0
Október472,20,44,42,92,22,8
Nóvember472,80,11,52,32,12,7
Desember473,30,11,32,41,52,0
2020
Janúar469,8-0,7-8,5-2,00,41,7
Febrúar474,10,911,61,11,72,4
Mars475,20,22,81,62,02,1
Apríl477,50,56,06,72,32,2
Maí480,10,56,75,23,12,6
Júní482,20,45,46,03,82,6
Júlí482,90,11,84,65,73,0

Mæling vísitölu neysluverðs í ljósi aðstæðna vegna Covid-19
Mæling og útreikningur á vísitölu neysluverðs í júlí gekk eðlilega fyrir sig að undanskildu því sem tengist samgöngum til og frá landinu, en þar eru enn frávik.

Fjallað var ítarlega um þær áskoranir sem urðu við verðmælingar vísitölu neysluverðs vegna Covid-19 í frétt um vísitölu neysluverðs í apríl 2020. Hagstofa Íslands minnir einnig á upplýsingavefinn „Spurt og svarað um vísitölu neysluverðs“.

Það er mat Hagstofu Íslands að nú í júlí hafi um 2% af grunni vísitölu neysluverðs verið metinn þar sem þjónustu var aflýst eða mælingar vantar vegna afleiðinga Covid-19.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.