FRÉTT VERÐLAG 25. JÚLÍ 2011


Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí er 379,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,11% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 359,9 stig og lækkaði um 0,22% frá júní.

Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,4% (vísitöluáhrif -0,56%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,2% (0,15%). Þar af voru 0,17% áhrif vegna hækkunar markaðsverðs en -0,02% vegna lækkunar raunvaxta. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,7% (0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,0% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,3% verðbólgu á ári (4,2% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2011, sem er 379,9 stig, gildir til verðtryggingar í september 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.501 stig fyrir september 2011.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2011
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júní Júlí %
Vísitala neysluverðs 212,6 212,8 5,0 5,0
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 188,6 189,7 6,1 0,8
Búvörur og grænmeti 174,7 175,0 8,3 0,5
Innlendar vörur án búvöru 199,3 201,0 4,5 0,3
Innfluttar vörur alls 192,9 190,8 4,2 1,6
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  186,3 184,0 4,3 1,5
Dagvara 188,6 190,1 4,1 0,7

Breytingar vísitölu neysluverðs 2010–2011
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2010
Júlí 361,7 -0,7 -7,6 -2,3 2,8 4,8
Ágúst 362,6 0,2 3,0 -2,9 0,9 4,5
September 362,6 0,0 0,0 -1,6 -0,2 3,7
Október 365,3 0,7 9,3 4,0 0,8 3,3
Nóvember 365,5 0,1 0,7 3,2 0,1 2,6
Desember 366,7 0,3 4,0 4,6 1,4 2,5
2011
Janúar 363,4 -0,9 -10,3 -2,1 0,9 1,8
Febrúar 367,7 1,2 15,2 2,4 2,8 1,9
Mars 371,2 1,0 12,0 5,0 4,8 2,3
Apríl 374,1 0,8 9,8 12,3 4,9 2,8
Maí 377,6 0,9 11,8 11,2 6,7 3,4
Júní 379,5 0,5 6,2 9,2 7,1 4,2
Júlí 379,9 0,1 1,3 6,3 9,3 5,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.