FRÉTT VERÐLAG 29. JÚLÍ 2009

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2009 er 345,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,17% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 323,9 stig og hækkaði hún um 0,56% frá júní.

Sumarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 7,3% (vísitöluáhrif -0,43%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,6% (-0,35%) og voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,32% en af lækkun raunvaxta -0,03%.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 4,8% (0,23%). Þar af voru áhrif af hækkun bensíngjalds 0,28%. Verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hækkaði um 4,7% (0,16%) og verð nýrra bíla hækkaði um 3,4% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 16,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,7% sem jafngildir 11,3% verðbólgu á ári (16,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2009, sem er 345,1 stig gildir til verðtryggingar í september 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.814 stig fyrir september 2009.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2008–2009
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2008
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0
Október 322,3 2,2 29,2 16,8 15,2 15,9
Nóvember 327,9 1,7 23,0 20,8 16,0 17,1
Desember 332,9 1,5 19,9 24,0 17,5 18,1
2009
Janúar 334,8 0,6 7,1 16,4 16,6 18,6
Febrúar 336,5 0,5 6,3 10,9 15,7 17,6
Mars 334,5 -0,6 -6,9 1,9 12,4 15,2
Apríl 336,0 0,4 5,5 1,4 8,7 11,9
Maí 339,8 1,1 14,4 4,0 7,4 11,6
Júní 344,5 1,4 17,9 12,5 7,1 12,2
Júlí 345,1 0,2 2,1 11,3 6,2 11,3

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2009
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júní Júlí %
Vísitala neysluverðs 193,0 193,3 11,3 11,3
Þar af:
Innlendar vörur 168,4 168,7 12,6 1,6
Búvörur og grænmeti 159,8 158,7 7,7 0,5
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 174,7 176,2 16,6 1,2
Innfluttar vörur alls 171,8 173,0 22,4 7,9
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  165,7 166,9 21,3 6,9
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 193,7 193,7 11,8 10,4
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 196,9 196,8 12,4 10,0
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 195,2 195,1 13,0 10,3
Dagvara 174,4 174,8 18,3 3,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.