FRÉTT VERÐLAG 25. JÚLÍ 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2008 er 310,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,94% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 278,3 stig og hækkaði um 0,87% frá júní.

Sumarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 11,6% (vísitöluáhrif -0,53%).

Verð á nýjum bílum hækkaði um 5,3% (0,38%) en á bensíni og díselolíu um 2,0% (0,10%). Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 2,2% (0,27%) og verð á húsgögnum og heimilsbúnaði hækkaði um 6,4% (0,18%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,1% (0,19%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,11% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,08%.

Síðastliðna tólf mánuði  hefur vísitala neysluverðs hækkað um 13,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 13,2%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,2% sem jafngildir 13,6% verðbólgu á ári (13,5% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2008, sem er 310,0 stig, gildir til verðtryggingar í september 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.121 stig fyrir september 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júní Júlí %
Vísitala neysluverðs 172,1 173,7 13,5 13,5
Þar af:    
Innlendar vörur 147,2 149,8 14,5 1,9
Búvörur og grænmeti 145,5 147,3 16,2 0,9
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 147,7 151,0 13,3 1,0
Innfluttar vörur alls 140,3 141,3 17,5 6,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  136,7 137,6 18,6 5,8
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 171,7 173,2 11,8 10,5
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 173,5 175,1 12,4 10,2
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 171,3 172,6 10,8 8,9
Dagvara 144,6 147,7 18,4 2,6

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.