Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2019 er 462,0 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,41% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 394,3 stig og lækkar um 0,73% frá desember 2018.

Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 11,1% (áhrif á vísitöluna -0,40%). Verð á nýjum bílum lækkaði um 1,8% (-0,15%). Veggjöld hækkuðu vegna nýrrar gjaldtöku í veggöngum (0,02%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,4% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,6%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2019, sem er 462,0 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.122 stig fyrir mars 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2018-2019
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2018
Janúar446,8-0,1-1,10,11,82,4
Febrúar449,50,67,53,22,52,3
Mars452,00,66,94,43,42,8
Apríl452,20,00,54,92,52,3
Maí451,8-0,1-1,12,12,62,0
Júní454,60,67,72,33,32,6
Júlí454,80,00,52,33,62,7
Ágúst455,70,22,43,52,82,6
September456,80,22,91,92,12,7
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3
Desember463,90,79,26,44,13,7
2019
Janúar462,0-0,4-4,82,33,23,4

Talnaefni