FRÉTT VERÐLAG 12. JANÚAR 2007

Vísitala neysluverðs í janúar 2007 er 266,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,26% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 245,3 stig, hækkaði um 0,12% frá því í desember.

Vetrarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 12,1% (vísitöluáhrif -0,58%).

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 2,0% (0,27%) og verð á nýjum bílum um 2,3% (0,15%). Þá hækkuðu gjöld tengd húsnæði um 13,3% (0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,1% verðbólgu á ári (0,5% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2006 var 260,6 stig, 6,8% hærri en meðalvísitalan 2005. Samsvarandi breyting var 4,0% árið 2005 og 3,2% árið 2004.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis var 240,7 stig árið 2006, 4,8% hærri en árið 2005. Samsvarandi breyting var 0,9% árið 2005 og 2,1% árið 2004.

Vísitala neysluverðs í janúar 2007, sem er 266,9 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.270 stig fyrir febrúar 2007.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6
Október 266,2 0,2 2,7 4,8 8,8 7,2
Nóvember 266,1 0,0 -0,4 3,2 5,6 7,3
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9

 

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Des. 2006 Janúar Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 149,2 149,5 6,9% 6,9%
Þar af:    
Innlendar vörur 136,2 138,3 7,6% 1,1%
Búvörur og grænmeti 130,6 134,8 7,7% 0,5%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 139,9 140,4 7,4% 0,6%
Innfluttar vörur alls 120,3 118,9 6,2% 2,1%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  116,2 114,7 6,3% 1,9%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 151,0 151,0 7,1% 6,1%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 151,8 151,5 7,3% 5,8%
Dagvara 130,3 132,6 8,6% 1,3%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.