FRÉTT VERÐLAG 12. JANÚAR 2006

Vísitala neysluverðs í janúar 2006 er 249,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,32% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 231,5 stig, lækkaði um 0,22% frá því í desember.

Vetrarútsölur eru nú víða hafnar og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,3% (vísitöluáhrif -0,55%). Gjald fyrir dagvistun barna lækkaði um 9,3% (-0,10%).

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 2,1% (vísitöluáhrif 0,35%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,31%, af hækkun meðalvaxta 0,02% og áhrif af hækkun lóðarleigu 0,03%. Ýmis gjöld vegna húsnæðis hækkuðu um 9,4% (0,11%). Þá hækkaði verð á bensíni og díselolíu um 2,2% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,4% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,5% sem jafngildir 2,1% verðbólgu á ári (1,7% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis). 
  
Meðaltal vísitölu neysluverðs árið 2005 var 244,1 stig, 4,0% hærra en meðaltalið 2004. Sambærileg hækkun var 3,2% árið 2004 og 2,1% árið 2003.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis var að meðaltali 229,6 stig, 0,9% hærri en meðaltalið 2004. Sambærileg hækkun var 2,1% árið 2004 og 0,7% árið 2003.

Vísitala neysluverðs í janúar 2006, sem er 249,7 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.930 stig fyrir febrúar 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
Janúar 239,2 0,1 1,0 3,1 4,0 4,0
Febrúar 239,7 0,2 2,5 3,1 4,4 4,5
Mars 241,5 0,8 9,4 4,3 5,1 4,7
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2005–2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Des. 2005 Jan. 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 139,4 139,9 4,4% 4,4%
Þar af:    
Innlendar vörur 126,4 128,6 0,3% 0,0%
Búvörur og grænmeti 122,0 125,2 1,2% 0,1%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 129,2 130,7 -0,3% 0,0%
Innfluttar vörur alls 113,3 112,0 -0,7% -0,2%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  109,4 107,9 -0,9% -0,2%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 141,1 141,1 4,3% 3,8%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 141,1 141,1 4,5% 3,6%
Dagvara 119,7 122,1 -1,5% -0,3%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.