FRÉTT VERÐLAG 27. FEBRÚAR 2018

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar 2018 er 449,5 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,60% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 386,7 stig og hækkar um 0,60% frá janúar 2018.

Vetrarútsölur hafa að hluta gengið til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 4,9% (áhrif á vísitöluna 0,16). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 0,7% (0,15%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,3% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 0,9%. 

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2018, sem er 449,5 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.875 stig fyrir april 2018.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2017            
Febrúar 439,6 0,7 8,9 1,1 1,5 1,9
Mars 439,9 0,1 0,8 0,8 0,6 1,6
Apríl 442,1 0,5 6,2 5,2 1,6 1,9
Maí 443,0 0,2 2,5 3,1 2,1 1,7
Júní 443,0 0,0 0,0 2,8 1,8 1,5
Júlí 442,9 0,0 -0,3 0,7 3,0 1,8
Ágúst 444,0 0,2 3,0 0,9 2,0 1,7
September 444,6 0,1 1,6 1,5 2,1 1,4
Október 446,7 0,5 5,8 3,5 2,1 1,9
Nóvember 446,0 -0,2 -1,9 1,8 1,4 1,7
Desember 447,2 0,3 3,3 2,4 1,9 1,9
2018            
Janúar 446,8 -0,1 -1,1 0,1 1,8 2,4
Febrúar 449,5 0,6 7,5 3,2 2,5 2,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.