FRÉTT VERÐLAG 25. FEBRÚAR 2016

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar 2016 er 431,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,68% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 394,3 stig og hækkaði hún um 0,69% frá janúar.

Vetrarútsölur eru víða gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,4% (áhrif á vísitöluna 0,25%) og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hækkaði um 11,7% (0,16%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð leiga) hækkaði um 1,0% (0,16). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 11,9% (-0,16).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2016, sem er 431,2 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2016. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.514 stig fyrir apríl 2016.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2016
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Janúar Febrúar %
         
Vísitala neysluverðs 239,9 241,6 2,2 2,2
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 220,8 221,7 2,2 0,3
Búvörur og grænmeti 208,3 208,3 1,9 0,1
Innlendar vörur án búvöru 229,6 231,3 2,4 0,2
Innfluttar vörur alls 185,6 188,5 -1,2 -0,4
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  175,6 178,5 -1,5 -0,4
Dagvara 215,3 215,1 1,5 0,2

 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2015-2016
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2015            
Febrúar 422,1 0,7 8,3 1,0 -0,5 0,8
Mars 426,4 1,0 12,9 3,9 1,8 1,6
Apríl 427,0 0,1 1,7 7,6 1,8 1,4
Maí 428,2 0,3 3,4 5,9 3,4 1,6
Júní 429,3 0,3 3,1 2,7 3,3 1,5
Júlí 430,0 0,2 2,0 2,8 5,2 1,9
Ágúst 432,3 0,5 6,6 3,9 4,9 2,2
September 430,6 -0,4 -4,6 1,2 2,0 1,9
Október 430,9 0,1 0,8 0,8 1,8 1,8
Nóvember 429,4 -0,3 -4,1 -2,7 0,6 2,0
Desember 430,8 0,3 4,0 0,2 0,7 2,0
2016            
Janúar 428,3 -0,6 -6,7 -2,4 -0,8 2,1
Febrúar 431,2 0,7 8,4 1,7 -0,5 2,2

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.