FRÉTT VERÐLAG 25. FEBRÚAR 2009

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar 2009 er 336,5 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,51% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 308,5 stig og hækkaði hún um 1,25% frá janúar.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 3,2% (vísitöluáhrif -0,49%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,45% og -0,04% af lækkun raunvaxta.

Vetrarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,3% (0,28%). Verð á pakkaferðum til útlanda hækkaði um 8,6% (0,18%) og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 12,8% (0,15%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 17,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 21,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,6% sem jafngildir 10,9% verðbólgu á ári (14,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2009, sem er 336,5 stig gildir til verðtryggingar í apríl 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.644 stig fyrir apríl 2009.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2008–2009
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2008
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0
Október 322,3 2,2 29,2 16,8 15,2 15,9
Nóvember 327,9 1,7 23,0 20,8 16,0 17,1
Desember 332,9 1,5 19,9 24,0 17,5 18,1
2009
Janúar 334,8 0,6 7,1 16,4 16,6 18,6
Febrúar 336,5 0,5 6,3 10,9 15,7 17,6

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2009
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Janúar Febrúar %
Vísitala neysluverðs 187,6 188,5 17,6 17,6
Þar af:    
Innlendar vörur 167,3 167,4 22,1 2,9
Búvörur og grænmeti 163,7 162,5 21,3 1,2
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 169,3 170,5 22,7 1,7
Innfluttar vörur alls 157,8 160,1 28,4 9,6
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  152,6 155,0 28,5 8,8
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm.,     
ávaxta og bensíns) 188,7 190,0 17,5 15,6
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 191,5 192,8 18,6 15,3
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 189,0 190,6 18,1 14,8
Dagvara 171,9 173,0 31,7 4,6

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.