FRÉTT VERÐLAG 26. FEBRÚAR 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í miðjum febrúar 2008 er 286,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,38% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 254,9 stig og hækkaði um 1,55% frá janúar.

Kostnaður vegna reksturs eigin bifreiðar jókst um 2,5% (vísitöluáhrif 0,36%). Þar af hækkaði verð á nýjum bílum um 2,6% (0,16%) og á bensíni og olíum um 3,6% (0,18%).

Vetrarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 9,1% (0,35%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,0% (0,20%), þar af voru 0,15% áhrif vegna hærri raunvaxta og 0,05% vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis. Þá hækkaði verð á mat og drykkjarvöru um 0,9% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði (miðað við verðlag í upphafi mánaðar í fyrra en um miðjan mánuð nú) hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,9%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 8,7% síðastliðna tólf mánuði og fastskattavísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,3% sem jafngildir 9,3% verðbólgu á ári (8,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í miðjum febrúar 2008, 286,2 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.651 stig fyrir apríl 2008.

Nú er í fyrsta sinn birt kjarnavísitala 3, sem er kjarnavísitala 2 án áhrifa af breytingum raunvaxta á húsnæðislið vísitölu neysluverðs. Vísitalan var unnin í samráði við Seðlabanka Íslands og hefur verið reiknuð aftur til janúar 2004. Nánari grein verður gerð fyrir kjarnavísitölu 3 í Hagtíðindahefti um vísitölu neysluverðs sem gefið verður út 16. maí 2008.

Fyrirhugaðri birtingu á talnaefni fyrir undirvísitölur þar sem viðmiðunartíma talnaefnis er breytt og miðað við janúar 2008=100 hefur verið frestað til apríl 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Janúar Febrúar %
Vísitala neysluverðs 158,2 160,4 6,8% 6,8%
Þar af:  
Innlendar vörur 136,3 137,1 -0,9% -0,1%
Búvörur og grænmeti 133,4 134,0 0,1% 0,0%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 138,0 138,9 -1,7% -0,1%
Innfluttar vörur alls 121,4 124,7 5,6% 1,8%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  117,3 120,6 6,1% 1,8%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 159,7 161,7 6,4% 5,7%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 160,5 162,6 6,6% 5,4%
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 159,6 161,4 5,6% 4,6%
Dagvara 130,2 131,4 -1,2% -0,2%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.