FRÉTT VERÐLAG 10. FEBRÚAR 2005
Vísitala neysluverðs í febrúar 2005 er 239,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,21% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 228,6 stig, lækkaði um 0,26% frá því í janúar.
       Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 2,8% (vísitöluáhrif 0,38%),  viðhaldskostnaður húsnæðis hækkaði um 2,5% (0,09%) og verð á rafmagni hækkaði um 4,2% (0,07%).
Vetrarútsölur eru enn í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 4,9% (-0,25%). Verð á mat og drykkjarvöru lækkaði um 0,7% (-0,11%).
       Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngildir 3,1% verðbólgu á ári (2,1% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).
       Vísitala neysluverðs í febrúar 2005, sem er 239,7 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.733 stig fyrir mars 2005. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.