FRÉTT VERÐLAG 21. DESEMBER 2023

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2023, er 608,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,41% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 497,9 stig og hækkar um 0,26% frá nóvember 2023.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitöluna 0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,7% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,7%.

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs árið 2023 var 592,8 stig, 8,8% hærra en meðalvísitala ársins 2022. Samsvarandi breyting var 8,3% árið 2022 og 4,4% 2021.

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs án húsnæðis árið 2023 var 489,3 stig, 7,8% hærra en meðalvísitala ársins 2022. Samsvarandi breyting var 6,1% árið 2022 og 3,8% 2021.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2023, sem er 608,3 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2024.

Eins og sagt var frá í frétt í október þá verða grunnvogir í vísitölu neysluverðs uppfærðar í janúar 2024. Endurnýjun grunnsins veldur sem slík ekki breytingum á vísitölunni.




Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.