FRÉTT VERÐLAG 22. DESEMBER 2022

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2022, er 564,6 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,66% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 466,8 stig og hækkar um 0,76% frá nóvember 2022.

Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 0,6% (áhrif á vísitöluna 0,10%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 19,4% (0,34%).

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs árið 2022 var 545,1 stig, 8,3% hærra en meðalvísitala ársins 2021. Samsvarandi breyting var 4,4% árið 2021 og 2,8% 2020.

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs án húsnæðis árið 2022 var 453,7 stig, 6,1% hærra en meðalvísitala ársins 2021. Samsvarandi breyting var 3,8% árið 2021 og 3,0% 2020.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,5%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2022, sem er 564,6 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2023. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.148 stig fyrir febrúar 2023.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.