FRÉTT VERÐLAG 20. DESEMBER 2018

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2018 er 463,9 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,74% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 397,2 stig og hækkar um 0,94% frá nóvember 2018.

Matur og drykkjarvörur hækkuðu um 1% (áhrif á vísitöluna 0,11%). Verð á nýjum bílum hækkaði um 1,7% (0,15%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 25,1% (0,27%). Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,2% (-0,11%).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2018 var 454,8 stig, 2,7% hærri en meðalvísitala ársins 2017. Samsvarandi breyting var 1,8% árið 2017 og 1,7% 2016.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2018 var 389,9 stig, 0,85% hærri en meðalvísitala ársins 2017. Samsvarandi breyting var -2,2% árið 2017 og -0,1% 2016.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2018, sem er 463,9 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.160 stig fyrir febrúar 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
  Vísitala
2017
Desember447,20,33,32,41,91,9
2018
Janúar446,8-0,1-1,10,11,82,4
Febrúar449,50,67,53,22,52,3
Mars452,00,66,94,43,42,8
Apríl452,20,00,54,92,52,3
Maí451,8-0,1-1,12,12,62,0
Júní454,60,67,72,33,32,6
Júlí454,80,00,52,33,62,7
Ágúst455,70,22,43,52,82,6
September456,80,22,91,92,12,7
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3
Desember463,90,79,26,44,13,7

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.