FRÉTT VERÐLAG 22. DESEMBER 2015

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2015 er 430,8 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,33% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 395,8 stig og hækkaði hún um 0,28% frá nóvember.

Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 16,9% (áhrif á vísitöluna 0,19%) og kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,4% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,0% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,4%.

Meðalvísitala neysluverðs árið 2015 428,0 stig, 1,6% hærri en meðalvísitala ársins 2014. Samsvarandi breyting var 2,0% árið 2014 og 3,9% 2013.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2015 var 395,9 stig, 0,1% hærri en meðalvísitala ársins 2014. Samsvarandi breyting var 0,8% árið 2014 og 3,8% 2013.


Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2015, sem er 430,8 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2016. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.506 stig fyrir febrúar 2016.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2015
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Nóvember Desember %
         
Vísitala neysluverðs 240,6 241,4 2,0 2,0
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 220,8 220,4 4,2 0,5
Búvörur og grænmeti 208,4 207,7 5,5 0,3
Innlendar vörur án búvöru 229,4 229,3 2,9 0,2
Innfluttar vörur alls 191,6 191,6 -3,0 -1,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  182,2 182,1 -3,2 -1,0
Dagvara 214,8 214,2 2,7

0,5

 

Breytingar vísitölu neysluverðs 2014–2015
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2014            
Desember 422,3 0,3 3,8 -0,3 -0,2 0,8
2015            
Janúar 419,3 -0,7 -8,2 -3,6 -1,3 0,8
Febrúar 422,1 0,7 8,3 1,0 -0,5 0,8
Mars 426,4 1,0 12,9 3,9 1,8 1,6
Apríl 427,0 0,1 1,7 7,6 1,8 1,4
Maí 428,2 0,3 3,4 5,9 3,4 1,6
Júní 429,3 0,3 3,1 2,7 3,3 1,5
Júlí 430,0 0,2 2,0 2,8 5,2 1,9
Ágúst 432,3 0,5 6,6 3,9 4,9 2,2
September 430,6 -0,4 -4,6 1,2 2,0 1,9
Október 430,9 0,1 0,8 0,8 1,8 1,8
Nóvember 429,4 -0,3 -4,1 -2,7 0,6 2,0
Desember 430,8 0,3 4,0 0,2 0,7 2,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.