FRÉTT VERÐLAG 21. DESEMBER 2011

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember er 386,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,36% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 365,7 stig og hækkaði hún einnig um 0,36% frá nóvember.

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,7% (vísitöluáhrif 0,25%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 12,1% (0,12%). 

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,3% og vísitalan án húsnæðis um 4,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,7% sem jafngildir 2,8% verðbólgu á ári (2,0% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2011 var 377,7 stig, 4,0% hærri en meðalvísitalan 2010. Samsvarandi breyting var 5,4% árið 2010 og 12,0% árið 2009.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2011 var 358,8 stig, 3,8% hærri en meðalvísitalan 2010. Samsvarandi breyting var 7,5% árið 2010 og 16,1% árið 2009.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2011, sem er 386,0stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.622 stig fyrir febrúar 2012.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2011
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Nóvember Desember %
Vísitala neysluverðs 215,5 216,3 5,2 5,2
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 191,5 194,0 7,2 1,0
Búvörur og grænmeti 177,7 180,4 8,8 0,5
Innlendar vörur án búvöru 202,1 204,4 6,0 0,5
Innfluttar vörur alls 194,0 193,6 4,1 1,6
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  187,3 186,9 4,1 1,4
Dagvara 191,1 194,0 6,1 1,1

Breytingar vísitölu neysluverðs 2010–2011
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2010
Desember 366,7 0,3 4,0 4,6 1,4 2,5
2011
Janúar 363,4 -0,9 -10,3 -2,1 0,9 1,8
Febrúar 367,7 1,2 15,2 2,4 2,8 1,9
Mars 371,2 1,0 12,0 5,0 4,8 2,3
Apríl 374,1 0,8 9,8 12,3 4,9 2,8
Maí 377,6 0,9 11,8 11,2 6,7 3,4
Júní 379,5 0,5 6,2 9,2 7,1 4,2
Júlí 379,9 0,1 1,3 6,3 9,3 5,0
Ágúst 380,9 0,3 3,2 3,5 7,3 5,0
September 383,3 0,6 7,8 4,1 6,6 5,7
Október 384,6 0,3 4,1 5,0 5,7 5,3
Nóvember 384,6 0,0 0,0 3,9 3,7 5,2
Desember 386,0 0,4 4,5 2,8 3,5 5,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.