FRÉTT VERÐLAG 12. DESEMBER 2007


Vísitala neysluverðs í desember 2007 er 281,8 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,68% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 251,4 stig, hækkaði einnig um 0,68% frá nóvember.

Kostnaður vegna eigin bifreiðar hækkaði um 1,5% (vísitöluáhrif 0,22%), aðallega vegna hækkunar á verði eldsneytis (0,11%) og dýrari bíla (0,09%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,5% (0,18%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 0,9% (0,17%) en þar af voru 0,13% áhrif vegna hækkunar vaxta og 0,04% vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,6%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,7% síðastliðna tólf mánuði og fastskattavísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% sem jafngildir 7,6% verðbólgu á ári (5,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í desember 2007, sem er 281,8 stig, gildir til verð-tryggingar í janúar 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.564 stig fyrir janúar 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Nóvember Desember %
Vísitala neysluverðs 156,8 157,9 5,9% 5,9%
Þar af:    
Innlendar vörur 133,0 134,3 -1,4% -0,2%
Búvörur og grænmeti 129,1 131,0 0,3% 0,0%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 135,3 136,3 -2,6% -0,2%
Innfluttar vörur alls 122,3 123,4 2,6% 0,9%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  118,3 119,4 2,7% 0,8%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 158,8 159,7 5,8% 5,1%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 159,9 160,8 6,0% 4,9%
Dagvara 126,2 127,8 -1,9% -0,3%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.