FRÉTT VERÐLAG 12. APRÍL 2006

Vísitala neysluverðs í apríl 2006 er 255,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,14% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 236,1 stig, hækkaði um 1,07% frá því í mars.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 6,7% (vísitöluáhrif 0,42%) og verð á nýjum bílum hækkaði um 4,1% (0,24%).

Verð á eigin húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,8% (0,30%), þar af voru áhrif af hækkun vaxta 0,06% en 0,24% af hækkun markaðsverðs. Verð á fötum og skóm hækkaði um 3,0% (0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2% sem jafngildir 9,1% verðbólgu á ári (8,2% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í apríl 2006, sem er 255,2 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.039 stig fyrir maí 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Mars 2006 Apríl 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 141,3 143,0 5,4% 5,4%
Þar af:    
Innlendar vörur 129,8 129,7 5,1% 0,7%
Búvörur og grænmeti 125,3 125,7 6,2% 0,4%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 132,8 132,1 4,4% 0,4%
Innfluttar vörur alls 113,3 116,1 2,8% 1,0%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  109,2 112,2 2,8% 0,9%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 142,7 143,9 4,6% 4,0%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 142,9 144,2 4,9% 3,9%
Dagvara 122,8 123,3 5,6% 0,8%

Vísitalan í apríl er reiknuð á nýjum grunni og er stuttlega gerð grein fyrir helstu breytingum á minnisblaði sem fylgir með. Vakin er athygli á að þann 3. maí verður gefið út hefti Hagtíðinda um vísitölu neysluverðs þar sem nánar verður fjallað um þróun hennar síðastliðið ár og um grunnskiptin í apríl.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.