FRÉTT VERÐLAG 28. ÁGÚST 2025

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í ágúst 2025, er 657,6 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,15% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 526,5 stig og lækkar um 0,38% frá júlí 2025.

Húsgögn og heimilisbúnaður hækkaði um 6,6% (áhrif á vísitölu 0,10%) og flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 12,0% (-0,35%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,8%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2025, sem er 657,6 stig, gildir til verðtryggingar í október 2025.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.