FRÉTT VERÐLAG 30. ÁGÚST 2023

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í ágúst 2023, er 597,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,34% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 494,5 stig og hækkar um 0,49% frá júlí 2023.

Sumarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,8% (áhrif á vísitöluna 0,21%) og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hækkaði um 4,5% (0,10%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 8,4% (-0,19%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,7% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,6%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2023, sem er 597,8 stig, gildir til verðtryggingar í október 2023.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.