FRÉTT VERÐLAG 27. ÁGÚST 2009

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2009 er 346,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 326,1 stig og hækkaði hún um 0,68% frá júlí.

Sumarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,9% (vísitöluáhrif 0,32%). Verð dagvara hækkaði um 1,1% milli mánaða (0,19). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,8% (-0,10%) og voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,06% en af lækkun raunvaxta -0,04%.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 3,5% (0,18%). Verð á húsgögnum lækkaði um 3,8% (-0,10%) og verð nýrra bíla lækkaði um 4,4% (-0,16%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 16,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,1% sem jafngildir 8,6% verðbólgu á ári (13,3% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í ágúst 2009, sem er 346,9 stig gildir til verðtryggingar í október 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.850 stig fyrir október 2009.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2008–2009
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2008
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0
Október 322,3 2,2 29,2 16,8 15,2 15,9
Nóvember 327,9 1,7 23,0 20,8 16,0 17,1
Desember 332,9 1,5 19,9 24,0 17,5 18,1
2009
Janúar 334,8 0,6 7,1 16,4 16,6 18,6
Febrúar 336,5 0,5 6,3 10,9 15,7 17,6
Mars 334,5 -0,6 -6,9 1,9 12,4 15,2
Apríl 336,0 0,4 5,5 1,4 8,7 11,9
Maí 339,8 1,1 14,4 4,0 7,4 11,6
Júní 344,5 1,4 17,9 12,5 7,1 12,2
Júlí 345,1 0,2 2,1 11,3 6,2 11,3
Ágúst 346,9 0,5 6,4 8,6 6,3 10,9

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2009
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júlí Ágúst %
Vísitala neysluverðs 193,3 194,3 10,9 10,9
Þar af:    
Innlendar vörur 168,7 171,0 12,6 1,6
Búvörur og grænmeti 158,7 162,5 8,7 0,5
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 176,2 177,2 15,7 1,1
Innfluttar vörur alls 173,0 174,0 22,5 7,9
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  166,9 168,0 21,4 6,9
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm.,     
ávaxta og bensíns) 193,7 194,1 10,9 9,5
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 196,8 197,2 11,4 9,2
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 195,1 195,7 12,1 9,6
Dagvara 174,8 176,7 17,5 2,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.